Ótti? Fíkn? Fyrralífs-komplexar?

Í hvert einasta skipti sem það kemur upp að það þurfi að versla inn til heimilisins segi ég að það þurfi að kaupa smjörva. Þetta gerist ansi oft og afleiðingarnar eru oftar en ekki ca. 3 dollur af smjörva í ísskápnum. 

Ætli ég hafi þjáðst af miklum smjörva-skorti í fyrra lífi? Woundering


KLING KLING

Ef ég væri tík (altså kvenkyns hundur...) væri ég með eggjahljóð í eggjastokkunum. Ég var að knúsa þann allra minnsta og mest krúttaðasta hvolp sem ég hef hitt Heart  Hann er ekki nema 16 daga gamall og boraði sig svoleiðis ofan í hálsakotið á mér að hjartað í mér bráðnaði og lak niður í hné.  Ég er hund-fangin InLove  

Nú er bara að sannfæra dýrin sem fyrir búa á heimilinu að hvolpur sé málið... bjartsýna ég GetLost


Hvað í andsk... ?

Ég er farin að halda að skráning mín í símaskránni líti svona út:

Berglind Inga, s. 868 5037, SÍMAFYRIRTÆKI OG TRYGGINGAFÉLÖG BÖGGIÐ MIG !!!

 

Fékk símtal áðan frá Tal.  Símtalið var í grófum dráttum svona:

Símagaur sem ég man ekki eftir að hafi kynnt sig:  Þú ert með númer skráð hjá okkur hérna hjá Tal.
Ég: Nei, reyndar ekki.
Símagaur: Nú, ertu nýfarin?
Ég: Já.
Símagaur:  Bíddu, varstu eitthvað ósátt eða?  (Núna fékk ég á tilfinninguna að ég hefði verið að dömpa honum...)
Ég: Já, reyndar...
Símagaur spurði út í hvað ég hefði verið ósátt við, ég man ekki orðrétt hvernig það hljómaði.
Ég: Það var bara svo dýrt.
Símagaur:  Bíddu, ertu þá hjá Nova eða...?
Ég:  Nei, Vodafone.
Símagaur: Og helduru að það sé eitthvað ódýrara eða...?
Ég:  Ég held ekkert um það. Mitt eigið bókhald sýnir mér það svart á hvítu.
Símagaur:  Við erum samt með lægsta mínútuverðið.
Ég:  Heyrðu vinur, svona dömp-símtöl gera fyrirtækinu þínu ekkert gott...
Símagaur:  Það nær þá ekki lengra...
Ég:  Nei, blessaður.

 

Að þessu tilefni getum við rifjað upp dömp-símtalið þegar ég dömpaði Símanum.


Hvað er málið?

Hvað er málið með tryggingafélög? Af hverju getur þetta lið ekki dru***ast til að senda manni tilboð í tölvupósti í stað þess að heimta að fá að koma inn á heimili manns til að ræða málin?  Ekki í milljón ár langar mig að bjóða einhverri tryggingasölumanneskju að setjast við eldhúsborðið mitt að ræða við mig þjónustu sem téð manneskja vill selja mér.  Ég hef nóg annað við tíma minn að gera en að sitja uppi með ókunnuga manneskju inni hjá mér!

Ef þig langar svona hrottalega að selja mér tryggingu, SENDU MÉR E-MAIL !!!

Þessi pirringur var í boði Tryggingamiðlunar.

 


Knit knit knit...

Ég er í Prjónaklúbbi sem hittist annan hvern miðvikudag. Um helgina var Prjónaklúbbshelgi/húsmæðraorlof og þá dvaldi prjónaklúbburinn heila helgi saman við bútasaum, prjón og svo auðvitað góðan mat og drykk Wink  

Afrakstur helgarinnar er þessi æðislega prjónageymslu-taska! Grin  Og svo prjónaði ég eins og 15 cm. í peysunni sem ég er að prjóna mér, sjá hér.

 

Í síðustu viku vann Varmalandsskóli sinn riðil í Skólahreysti, verið viss um að missa ekki af því í sjónvarpinu 21. febrúar. Ég hef illan grun um að ég sjáist í mynd... við skulum vona að ég þekkist ekki innan um alla unglingana Halo

 


Knit happens !

Ég er orðin prjóna-óð. Ég hugsa um munstur og garn á a.m.k. 5 mínútna fresti. Ég svofna út frá prjóna-pælingum, mig dreymir prjónadrauma og ég vakna í prjóna-pælingum. Ég er með 3 verkefni í gangi akkúrat núna, nýbúin að klára tvö.

Blessunarlega er Dýrið ekki farið að hafa áhyggjur af þessari áráttu, honum finnst ég bara þjóðleg og sæt þar sem ég sit í stólnum sem Hólmfríður langamma átti og prjóna úr einspinnu Wink

 

Nú er laugardagur og ég var vöknuð kl. 8.30 í morgun. Ósanngjarnt og óeðlilegt!  Fyrir hádegi var ég búin að þvo tvær þvottavélar, lesa 86 bls. í Myrká, prjóna nokkrar umferðir í Þríhyrnu og hekla nokkrar umferðir í poka. Dagurinn fer í prjón og hekl og notalegheit - LOVE IT Grin

 

Prjónarar/heklarar, Ravelry er himnaríki prjónarans/heklarans. ÆÐISLEG síða þar sem maður getur haldið öllu til haga,funrið uppskriftir, leitað ráða og gleymt sér heilu og hálfu tímana...  

Farin að prjóna !  ...og það er víst töff að prjóna Cool

P.S.  Lagið sem stúlknasveitin Elektra flytur í kvöld fer fyrir Íslands hönd í Eurovision.  Ég mun minna ykkur á þessa spá mína þegar íslenska þjóðin er búin að kjósa þetta lag sem sitt framlag.


Þorrablót in like 15 minutes...!

Þá er komið að því:  Þorrablót Skarðshrepps hins forna árið 2009. Fyrri ferð er farin og nú bíður maður bara eftir því að verða sóttur   Grin

Ég hef ekki farið á tvö síðustu þorrablót svo væntingarnar eru gígantískar!  Og það skal skjalfest að ég var tilbúin (jebb, algjörlega tilbúin) hálftíma áður en húsið opnaði, sem gerir klukkutíma áður en geimið byrjar !!!  ÚJE  Cool


Fargans !!!

Í þar síðustu færslu lýsti ég einstökum hæfileika mínum til að prjóna hægri vettlinga.

Í kvöld prjónaði ég vettlingapar. Eða altså, ég prjónaði tvo hægri vettlinga...Í ÞRIÐJA FOKKINGS SKIPTI !

 

Þetta fer að verða einkennandi fyrir prjónaskap minn GetLost


Starfsmaður mánaðarins !

Hér í skólanum er í gangi Grænfánaverkefni. Við eru að breyta hugsunarhættinum og ætlum að verða umhverfisvænni. Spara pappír, slökkva ljósin þegar við erum ekki í stofunum og þar fram eftir götunum.

Ég er gífurlega hörð á Grænfánanum. Ég slekk alltaf ljósin, ljósrita báðum megin og læt börnin skila mér ritun í tölvupósti í stað pappírs.

Í vikunni var ég að ljósrita verkefni. Bara eitt A4 blað á hvern nemanda, alls 15 eintök. Ég skellti í ljósritunarvélina, valdi 15 eintök og skrapp á klósettið meðan ég beið.

Kom svo aftur og ljósritunarvélin var komin upp í 33 eintök. Af 115 sem hún hafði verið beðin um. DAMN IT!  Náði að stoppa kvikindið en sat uppi með rúmlega helmingi fleiri eintök en ég ætlaði mér. 

Ég verð POTTÞÉTT kosin starfsmaður mánaðarins! Whistling


Nýtt ár byrjar vel !

Ég fékk svolítið af handavinnubókum í jólagjöf sem ég hef iðað í skinninu eftir að byrja að prjóna/sauma út eftir. Í gærkvöldi settist ég  niður og prjónaði minn fyrsta lopavettling. Ég hef aldrei prjónað vettlinga úr lopa áður en þetta gekk mjög hratt fyrir sig.

Þegar ég fór inn í rúm að lesa var ég búin með einn hægri vettling. Þumall og frágangur að vísu eftir en samt!

Í dag hélt ég svo áfram að prjóna. Rétt áðan kláraðiég annan vettling. Til allrar óhamingju var hann líka hægri vettlingur... Ég stend uppi með tvo hægri vettlinga með svaka flottu mynstri. Þekkir einhver einhvern með tvær hægri hendur? Whistling

Dýrið minnti mig á að ég hefði gert þetta sama (þ.e. prjónað tvo hægri vettlinga) fyrir u.þ.b. tveimur árum. Þá mundi ég að eftir það ætlaði ég aldrei að prjóna vettlinga aftur...

 

Oh well... farin að prjóna annað par af vettlingum. Ætla að reyna að hafa það á sitthvora höndina í þetta skiptið Wink


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband